
Biður þingið um 33 milljarða dollara
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/04/28/bidur_thingid_um_33_milljarda_dollara/
Joe Biden Bandaríkjaforseti bað þingið í dag um 33 milljarða dollara fyrir Úkraínu og mannúðarmál tengd afleiðingum stríðsins. Hann sagði að það væri „ekki ódýrt“ en Washington yrði að hjálpa landinu gegn “grimmd og árásum” Rússa.