
Rauða krossinum meinaður aðgangur að særðum stríðsföngum - Vísir
https://www.visir.is/g/20222292284d/rauda-krossinum-meinadur-adgangur-ad-saerdum-stridsfongum
Stríðsfangelsi í bænum Olenivka í Donetsk-héraði sem er á valdi Rússa varð fyrir loftárás á föstudag með þeim afleiðingum að 53 úkraínskir stríðsfangar létust og 75 særðust. Rauði krossinn segir yfirvöld ekki enn hafa orðið við beiðni samtakanna um að heimsækja fangelsið.