
Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað - Vísir
https://www.visir.is/g/20252672952d/fridur-eda-svikalogn-hilmari-thor-hilmarssyni-professor-svarad
Sæll Hilmar. Síðastliðinn sunnudag svaraðir þú grein minni „Hvers konar friður?“, þar sem ég innti þig svara varðandi málflutning þinn um NATO og stríðið í Úkraínu. Ég þakka fyrir svarið og fagna því að við séum greinilega sammála um að Ísland ætti aldrei að skrifa undir sambærilega samninga og þá sem Úkraínu stóð til boða vorið 2022.