
Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi - Vísir
https://www.visir.is/g/20242666155d/skorar-vestrid-a-holm-i-21.-aldar-einvigi
Valdimír Pútín, forseti Rússlands, skoraði í morgun Vesturlönd á hólm í Úkraínu. Pútín sagði að Vesturlönd ættu að koma öllum sínum bestu loftvarnarkerfum fyrir í Kænugarði og reyna að stöðva eldflaugaárás Rússa á borgina. Hann sagði vestræn loftvarnarkerfi ekki eiga séns á að stöðva nýlega eldflaug Rússa.