
Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu - Vísir
https://www.visir.is/g/20242652976d/skutu-fyrstu-langdraegu-skotflauginni-ad-ukrainu
Úkraínumenn segja Rússa hafa skotið svokallaðri ICBM eldflaug að Dnipro-borg í Úkraínu í nótt. Sé það rétt er það í fyrsta sinn sem Rússar beita slíku vopni en slíkar skotflaugar geta borið kjarnorkuvopn nánast hvert sem er í heiminum en þessi eldflaug er sögð hafa borið hefðbundna sprengjuodda.