
Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum - Vísir
https://www.visir.is/g/20242632755d/sprengdu-upp-voruskemmu-fulla-af-dronum
Úkraínumenn gerðu í kvöld árás á vöruskemmu í sunnanverðu Rússlandi sem þeir segja að hafi hýst fjögur hundruð Shahed-sjálfsprengidróna. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum í Rússlandi renna stoðum undir frásögn úkraínska hersins.