
Rússar reyndu að ráða forstjóra Rheinmetall af dögum - Vísir
https://www.visir.is/g/20242595800d/russar-reyndu-ad-rada-forstjora-rheinmetall-af-dogum
Bandarísk yfirvöld komust að því í upphafi árs að rússnesk stjórnvöld hefðu áform um að drepa Armin Papperger, forstjóra þýska fyrirtækisins Rheinmetall. Fyrirtækið er einn stærsti vopnaframleiðandi Evrópu og hefur sent hergögn í gífurlegu magni til Úkraínu. Þýskum yfirvöldum tókst að koma í veg fyrir tilræðið, eftir að hafa verið vöruð við af bandarísku leyniþjónustunni.