
Rússar sækja hart fram í austri - Vísir
https://www.visir.is/g/20232479406d/russar-saekja-hart-fram-i-austri
Undanfarna daga hafa gífurlega harðir bardagar átt sér stað í austurhluta Úkraínu. Þar hafa Rússar reynt að umkringja víggirta úkraínska hermenn við bæinn Avdívka og hafa þeir náð einhverjum árangri. Sókninni hefur þó fylgt gífurlegur kostnaður fyrir Rússa.