
Segir aftökumyndband sýna hið raunverulega Rússland - Vísir
https://www.visir.is/g/20232401225d/segir-aftokumyndband-syna-hid-raunverulega-russland
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að myndband sem sýnir rússneskan hermann skera höfuðið af úkraínskum hermanni í haldi Rússa, sé til marks um hvernig Rússland sé. Ódæðið muni aldrei gleymast og að Úkraínumenn þurfi aðstoð til að reka Rússa á brott.