
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Það er verið að slátra þeim“ - Vísir
https://www.visir.is/g/20232397300d/rynt-i-stoduna-i-ukrainu-thad-er-verid-ad-slatra-theim-
Yfirmenn úkraínska hersins við Bakhmut segja bardaga þar hafa farið Úkraínumönnum í vil. Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna lýsti átökunum nýverið sem „slátrun“ á Rússum en úkraínskir hermenn segja varnir bæjarins þó hafa verið verulega kostnaðarsamar.