
„Úkraínumenn munu aldrei fyrirgefa“
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2023/03/31/ukrainumenn_munu_aldrei_fyrirgefa/
Forseti Úkraínu, Volodimír Selenskí, segir að Úkraínumenn muni aldrei fyrirgefa Rússum fyrir stríðsglæpi þeirra í Bútsja. Í dag er ár síðan að Rússar yfirgáfu bæinn eftir 33 daga hernám og hefur bærinn orðið tákn þeirra voðaverka sem Rússar hafa framið í landinu, síðan innrásin hófst.