
Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut - Vísir
https://www.visir.is/g/20232390818d/malalidar-wagner-lysa-hryllilegum-atokum-vid-bakhmut
Ráðamenn á Vesturlöndum segja þúsundir rússneskra fanga, sem ráðnir hafa verið úr fangelsum landsins til að berjast fyrir málaliðahópinn Wagner Group, hafa fallið í átökum í Úkraínu. Föngunum var boðið frelsi í skiptum fyrir sex mánaða þjónustu og hefur fjölda fanga verið sleppt.