
Finnar byrja að girða sig af frá Rússlandi - Vísir
https://www.visir.is/g/20232384008d/finnar-byrja-ad-girda-sig-af-fra-russlandi
Framkvæmdir við girðingu á hluta landamæra Finnlands og Rússlands eru hafnar. Finnska landamærastofnunin segir að girðingin verði þriggja metra há með gaddavír ofan á henni. Tilgangurinn sé að tryggja landamærin frekar.