
Vilja að vesturveldi létti þrýstingi á Rússa til að lægja öldurnar - Vísir
https://www.visir.is/g/20232382221d/vilja-ad-vesturveldi-letti-thrystingi-a-russa-til-ad-laegja-oldurnar
Friðaráætlun sem kommúnistastjórnin í Kína lagði fram í dag kallar eftir því að vestræn ríki láti af refsiaðgerðum sínum gegn Rússlandi vegna innrásar þess í Úkraínu. Kínverjar taka undir ásakanir Rússa um að það hafi verið vesturveldunum að kenna að þeir réðust á nágranna sína fyrir ári.