
Segjast ætla að draga Rússa til ábyrgðar - Vísir
https://www.visir.is/g/20222346941d/segjast-aetla-ad-draga-russa-til-abyrgdar
Forsetar bandaríkjanna og Frakklands sögðust á blaðamannafundi í gær ætla að draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi og önnur ódæði þeirra í Úkraínu. Joe Biden sagðist tilbúinn til viðræðna við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en eingöngu ef Pútín væri að leita leiða til að binda enda á innrásina í Úkraínu.