
Samlandar í hringiðu stríðsátaka
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/11/18/samlandar_i_hringidu_stridsataka/
Gerard Pokruszynski, sendiherra Póllands á Íslandi, segir að opnun sendiráðs Íslands í Póllandi í næsta mánuði komi á góðum tímapunkti. „Ég tel það vera afar mikilvægt að Ísland hafi ákveðið að opna sendiráð í Varsjá en það verður 1. desember næstkomandi eins og fram hefur komið,“ segir hann.