
Hækka viðbúnaðarstig pólska hersins eftir sprengingarnar - Vísir
https://www.visir.is/g/20222339488d/haekka-vidbunadarstig-polska-hersins-eftir-sprengingarnar
Pólska ríkisstjórnin tilkynnti í kvöld að viðbúnaðarstig hersins hefði verið hækkað eftir að tveir létust af völdum flugskeyta sem komu yfir landamærin að Úkraínu í dag. Forseti Úkraínu sakar Rússa um að stigmagna átökin.