
Sækja líka fram gegn Rússum í norðri - Vísir
https://www.visir.is/g/20222307695d/saekja-lika-fram-gegn-russum-i-nordri
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu mun í ávarpi sínu í kvöld tilkynna „góðar fréttir“ varðandi nýja gagnsókn Úkraínumanna gegn hersveitum Rússlands í norðurhluta landsins. Hávær orðrómur gengur um á samfélagsmiðlum í Úkraínu og Rússlandi um að Úkraínumenn hafi náð góðum árangri í austurhluta Kharkív-héraðs.