
Rússar muni skrúfa fyrir gasflæði um Nord Stream 1 leiðsluna enn á ný - Vísir
https://www.visir.is/g/20222304629d/russar-muni-skrufa-fyrir-gasflaedi-um-nord-stream-1-leidsluna-enn-a-ny
Orkurisinn Gazprom er sagður ætla að loka fyrir flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna til Þýskalands á morgun og muni lokunin vara í þrjá daga. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gazprom lokar á flæði gass til Þýskalands en gasflæði þangað sem og til annarra Evrópuríkja hefur verið óstöðugt í nokkurn tíma.