
Skipun um stærri her ólíkleg til að skila árangri í Úkraínu - Vísir
https://www.visir.is/g/20222302725d/skipun-um-staerri-her-olikleg-til-ad-skila-arangri-i-ukrainu
Vladimír Pútin, forseti Rússlands, gaf í dag þá skipun að her Rússlands yrði stækkaður. Hermönnum yrði fjölgað um þrettán prósent fyrir enda þessa árs. Það þýðir að þeim yrði fjölgað um 137 þúsund og yrði her Rússlands þá skipaður 1,15 milljónum hermanna.