
Senda fleiri HIMARS og nákvæmari skot til Úkraínu - Vísir
https://www.visir.is/g/20222284719d/senda-fleiri-himars-og-nakvaemari-skot-til-ukrainu
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að senda fleiri vopnakerfi og nákvæm skotfæri til Úkraínu. Bæði er um að ræða eldflaugakerfi af gerðinni HIMARS, sem gera Úkraínumönnum kleift að gera nákvæmar árásir á skotmörk í allt að hundrað kílómetra fjarlægð, og 155 mm skot í fallbyssur sem hægt er að skjóta af mun meiri nákvæmni en hefðbundnum stórskotaliðsskotum.