
Ef einhver getur haldið Eurovision þá er það Úkraína
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/05/16/ef_einhver_getur_haldid_eurovision_tha_er_thad_ukra/
„Ef að einhver þjóð í heiminum getur haldið Eurovision eftir eitt ár þá held ég að það sé Úkraína,“ segir Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari og íbúi í Kænugarði, í samtali við mbl.is um ummæli Volodimír Selenskí Úkraínuforseta sem hefur heitið því að keppnin verði haldin í Maríupol einn daginn.