
Milljarður evra til Pútíns á hverjum degi - Vísir
https://www.visir.is/g/20222251353d/milljardur-evra-til-putins-a-hverjum-degi
„Við höfum bráðum styrkt Úkraínu um tæplega einn milljarð evra. Þetta kann að hljóma mikið en einn milljarður evra er það sem við greiðum Pútín á hverjum einasta degi fyrir orkuna sem hann útvegar okkur. Frá því að stríðið hófst höfum við greitt honum 35 milljarða evra. Berið þetta saman við þann eina milljarð evra sem við höfum látið Úkraínu fá til þess að festa kaup á vopnum og hergögnum.“