
Eyþór segir það enga ögrun við Rússa að leggja til Kænugarðsstræti - Vísir
https://www.visir.is/g/20222229662d/eythor-segir-thad-enga-ogrun-vid-russa-ad-leggja-til-kaenugardsstraeti
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir það á engan hátt ögrun við Rússa að leggja til að nafni Garðastrætis verði breytt í Kænugarðsstræti, þrátt fyrir að sendiráð þeirra standi við Garðastræti 33. Fyrst og fremst sé um stuðning við Úkraínu að ræða.